Fór á frekar flotta tónleika í gær með hljómsveitinni Malneirophrenia - tónlistin er í stíl við gamlar hryllingsmyndir og Danny Elfman... frekar töff hjá þeim.
Mér tókst að gera mig að í gær.
Eitt skiptið var þegar ég fór af einhverjum óútskýranlegum ástæðum að rökræða við flyer-gaur. Sem reyndi að fá mig og fleiri á tónleika hjá vinum sínum. Sú hljómsveit flokkast sem "psychadelic sýru punk" (eins og flyer-gaurinn sagði að Siggi Pönk kallar þetta). ....En jæja.. einhvernvegin þróaðist þetta allt saman í rifrildi sem endaði þannig að Flyer-gaurinn hreytir í mig "vert þú bara ekkert að koma á tónleikana okkar, ég sé að þú átt hvort sem er engan pening" og snýr sér svo við til að labba út...
...eftir stóð ég með krosslagðar hendur og kallaði stolt "Einmitt! Ég á sko alls engan pening!"
en svo leið næstum því yfir mig af skelfingu þegar ég fatta að ég gleymdi að segja "fyrir þig!, 'Eg á sko alls engan pening fyrir ÞIG!".
Hitt atvikið var þegar ég hitti Erling og ég spyr hann hvað sé að frétta af Áslaugu systur hans. Erling segist vera á leiðinni í afmæli til hennar á laugardeginum (í dag). Ég hringi að sjálfsögði strax í Áslaugu til að óska henni til hamingju með daginn en kemst að því að hún eigi bara alls ekki afmæli.....
heldur Rakel dóttir hennar.... og Áslaug á afmæli 11 júní.
En Áslaug er svo sæt og góð að hún ætlar að geyma afmæliskveðju þar til á næsta ári.... svona ef ég skildi gleyma mér aftur.