Heimsóknir
Í dag:  23  Alls: 90120
11.03.2008 21:00:42 / krissaosk

Draumakenning og samhliða alheimar.


Ég vona það svo innilega að enginn móðgist við lesturinn…… en um daginn hringdi í mig maður sem vildi ná tali við formann Maníu. Maðurinn sagðist þurfa að ræða alvarlegt mál sem tengdist geðmálum. Ég að sjálfsögðu sagði að ég væri tilbúin að hlusta á vandamálið og jafnvel aðstoða við úrvinnslu þess. Svo ég mældi mér mót við manninn ásamt hluta af stjórn Maníu….. en áður en símtalinu lauk þá nefndi hann nokkur rit sem við þyrftum að lesa og hann ætlaði sér að kynna fyrir okkur á fundinum……

…Símtalinu lauk og ég áttaði mig á því að hér væri ekki nemandi háskólans að leita sér úrræða heldur hrein sölumennska í gangi....

Eftir að hafa rætt þetta betur við stjórnina og fjölskylduna þá ákvað ég að best væri að aflýsa fundinum því félagið hefur hvorki áhuga né peninga til að kaupa þessi rit…… svo ég reyndi að ná í manninn nokkru sinnum en það gekk ekki og ég endaði þetta með því að senda honum skilaboð um að við hefðum ekki áhuga á að kaupa ritin og því ætluðum við að aflýsa fundinum.

En hvaða rit voru þetta?

Jú kenningar Helga Pjeturs Nýalssinna um samhliða alheima og endurholgun á fjarlægum plánetum sem skrifaðar voru á árunum 1922 -1947.

Helgi kom með draumakenningu um að hver draumur væri lífsamband manna og pláneta.  Hann hélt því fram að draumar bærust frá lífverum annarra pláneta og þegar við dreymum þá erum við að þiggja boð frá þeim lífverum. Einnig skrifaði hann um framhaldslíf og sagði það vera efnislegt líf á öðrum stjörnum.

Sumir segja jafnvel að Helgi hafi verið á undan sinni samtíð og að ný jarðöld muni hefjast þar sem fólk skilur heiminn í nýölskum skilningi. Enn frekar er sagt að stutt sé í að íslenskar og erlendar vísindastofnanir muni taka kenningu Helga alvarlega þar sem kenningin um samhliða alheima sé „sönnuð“.

En „bottomlænið“ er að maðurinn er ennþá að reyna að ná í mig en ég er svo mikill kúkur að ég svara ekki símanum...

….. Ég er búin að segja nei takk og þessar pælingar um endurholgun á öðrum plánetum eru bull og hafa lítið sem ekkert með geðvernd að gera .......................

Roger
lace />


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.03.2008 00:01:11 / krissaosk

Note to myself...

...að svara ekki númerum sem ég þekki ekki.

...hef að vísu lagt það í vanan að svara ekki númerum sem ég þekki ekki en þar sem ég hef ekki ennþá nennt að "innfæra" símaskrána mína, þá hefur þessi vani aðeins þynnst...

...en í dag fékk ég áminningu...og það all hressilega.. og nú er ég aftur hætt að svara númerum sem ég þekki ekki......svo ef þið þurfið að ná í mig þá er oft gott að senda bara sms...



paranoia? nei bara almenn skynsemi.

-----

Viðbót:    Tron í 3-D! eftir 2-3 ár, það er geðveikt!

» 3 hafa sagt sína skoðun